2.2.2009 | 22:05
Hugmyndafræðin var röng, en hvaða hugmyndafræði er rétt ?
Sú hugmyndafræði sem Gylfi á hér við hlýtur að vera sú ríkjandi stefna ný frjálshyggju þar sem á að leyfa fyrirtækjum að vaxa óhindrað og í raun leyfa öllum markaðnum að vera algerlega frjáls. Ef það er leyft þá muni markaðurinn sjá um sig sjálfur og leita jafnvægis. En og sést hefur undanfarið þá á þessi kenning alls ekki við rök að styðjast alveg eins og kommúnisminn með sínar hugmyndir um að allir menn séu jafnir og eigi þar af leiðandi að fá allt jafnt er heldur ekki rétt.
En hvað er þá til ráða ?
Hvernig myndi fjármálaeftirlit í proutísku þjóðfélagi virka ? Mér dettur allavega í fljótu bragði í hug ein af meginreglum PROUT sem er að enginn einstaklingur á að geta sankað að sér auð án skýrs leyfis frá heildinni. "No individual should be allowed to accumulate any physical wealth without the clear permission or approval of the collective body." Samkvæmt þessu hefði jafnvel sú gamla hugmyndafræði að leyfa óbeislaðan markað geta verið áfram ef það hefði verið gefið skýrt leyfi frá heildinni, þ.e öllum Íslendingum að okkar sameiginlegi auður hefði mátt safnast á svo fáar hendur. En slíkt leyfi hefði sennilega aldrei fengist.
|
Hugmyndafræðin var röng |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Alla mína ævi hefur trúarboð frjálshyggjunar og nýfrjálshyggjunar orðið sterkara og sterkara uns það sprakk upp í ár. Alltaf hefur mér verið illa við fjárfestingar þar sem lagðir eru peningar í fyrirtæki sem maður er ekki eigandi eða starfsmaður, það er kemur ekki nálægt fyrirtækinu og á enga hagsmuni af því nema að fá arð. Þegar ég var um 18 ára þá kynntist ég hugmyndafræðinni PROUT eða framsækinni nytjakenningu. Í bók er ég las er hét hinu lýsandi nafni
AFTER CAPITALISM var að hluta til farið í hlutabréfamarkaðinn og hvernig búið væri að gera fyrirtæki að þrælum fjárfesta og hluthafa sinna sem ýttu stöðugt á meiri arð óháð t.d velferð starfsmanna, áhrifum á grenndarsamfélagið, siðrænum viðskiptaháttum, áhrifum á umhverfið osfrv.
Nú segja margir að nýfrjálshyggjan sé dauð og ekki get ég sagt að ég syrgi hana. En hvað kemur í staðinn ? Kommúnismi ? Sosíalismi ? Hvaða valkosti höfum við, skiptist allt í hægri og vinstri. Einn valkosturinn gæti verið fyrrnefnd kenning. Að mínu mati er PROUT góð blanda af frjálshyggjulegum pælingum og sósial pælingum. Þar er lagt mikið upp úr frjálsræði á markaði en hinsvegar er ekki talað um ósýnlegar hendur sem grípa inní og annað slíkt trúboð, hinsvegar er talað um að meirihluti atvinnulífsins verði að vera uppbyggt af samvinnureknum fyrirtækjum þar sem eitt atkvæði sé á hvern eiganda og starfsmenn fyrirtækja séu eigendur. Þannig byggist upp efnahagslegt lýðræði frá grasrótinni, út frá efnahagslífinu. En þarna er ekki verið að segja að samvinnurekstur sé eina sem gildi heldur eiga lítil fyrirtæki að vera byggð upp sem einkarekin enda enginn tilgangur að samvinnuvæða þau, lykiliðnaður á svo að vera í höndum ríkisins. Ríkið er svo eittvað sem ég þarf að skoða betur í þessarri kenningu, en eins og ég sé það við fyrstu sín á það að vera siðgæðisvörður og athuga að öllum sameiginlegum leikreglum sé gætt. Skattamál skv þessarri kenningu eru einnig afar áhugaverð en þar er enginn tekjuskattur, ætla mér að skoða það nánar og skrifa svo um það hér.
|
Ísland er í sárum eftir nýfrjálshyggjuna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Það þjónar engum tilgangi að beita ofbeldi. Hvet alla til að hætta umsvifalaust að slíku, bæði lögreglan og aðrir.
Það þjónar engum tilgangi að ráðast gegn lögreglunni, þetta er láglaunastétt sem er að vinna vinnuna sína.
Beinið kröftunum að stjórnvöldum sem bera sökina á bæði löggunni og því sem miður hefur farið hér.
Hvet alla til að láta af ofbeldi
Hvet fólk einnig til að mótmæla ekki á kvöldin og sérstaklega ekki á föstudags og laugardagskvöld þar sem fillerí mun eyðileggja þau
Hvet einnig alla til að drekka kaffi ekki áfengi!
|
Enn mótmælt við þinghúsið |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
22.1.2009 | 09:22
"algjörlega tilefnislaus árás með baneitruðu gasi
„Algjörlega tilefnislaus árás með baneitruðu gasi“
Blaðinu barst þessi vitnisburður frá mótmælunum:
„Góðan daginn
Ég var þarna og af hálfu mótmælenda var ekkert ofbeldi fyrr en eftir að þeir sprengdu gasið. Vissulega voru einn og einn að atast í löggunni en það var bara í formi þess að ýta á skildina þeirra og einstaka sinnum að kalla þá illum nöfnum.
Ef þeir vildu losna við þetta bögg (sem ég myndi alveg skilja) þá áttu þeir að mazea viðkomandi og taka einstaklinga úr umferð en ekki gasa hundruðir friðsamra mótmælenda sem voru að tromma og syngja.
Algjörlega tilefnislaus árás með baneitruðu gasi. Ég forðaði mér eftir að þeir héldu áfram að sprengja táragas aftur og aftur og aftur. Hátt í 20 bombur sprengdar fyrir kl. 1. Engu grjóti hent í lögguna fyrr en eftir táragasið.
Þetta er auðvitað ekki ákvörðun einstakra lögreglumanna sem flestir standa sig eins og hetjur við mjög erfiðar aðstæður. Þetta er stjórnvaldsákvörðun til að sýna hver ræður. Ruddaleg aðferð og baneitruð til þess að dreifa mannfjöldanum.
Og já, eftir að þeir gösuðu ÞÁ kom ofbeldi frá mótmælendum. Fólk varð skiljanlega mjög reitt við þessa fullkomlega tilefnislausu árás.
Þarna var fólk á öllum aldri, vissulega yngist þegar líður á kvöldið en engu að síður fullt af fullorðnu fólk, þar á meðal ég.“
Enn fremur kemur fram annarsstaðar á vefnum:
Lögregluofbeldi
Mótmælin færðust aftur á Austurvöll, eftir mikinn fögnuð. Þar var lögregla vanbúin og undirmönnuð. Þær fáliðuðu sveitir sem eftir voru á vellinum beittu þá vopnum sínum óspart á mótmælendur.
Ljósmyndari Morgunblaðsins sagði heimildamanni Nei. að hann hefði séð lögregluna króa manneskjur af og berja þær „í klessu“ og sparka karatespörk – börðu eina stelpu „frekar illa, sko. Þá byrjaði fólk af alvöru að láta rigna grjóti. Fram að því höfðu mótmælendur ekki hagað sér öðruvísi en áður.“
Ofbeldi mótmælenda
Ljóst þykir að einhverjir úr hópi mótmælenda grýttu múrsteinum eða einhvers konar hleðslusteinum í átt að lögreglu, og slösuðu lögreglumenn. Nei. er ekki enn ljóst hversu alvarlega. Aðrir mótmælendur, þeir sem voru á svæðinu sem tekið hafa virkan þátt í andófi liðinna vikna og mánuða, báru sig sérstaklega eftir því, eftir þetta, að stöðva slíka framgöngu, og slógu meðal annars upp varnarkeðju, „human shield“, fyrir framan lögreglumenn til að verja þá grjótkasti.
|
Táragasi beitt á Austurvelli |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
21.1.2009 | 22:37
Jæja eitthvað að gerast
Þá er samfylkingin í Reykjavík búin að samþykkja að slíta stjórninni sem hlýtur að vera nokkuð öruggt merki um að stjórnarsamstarfið er á enda og að það verði boðað til kosninga.
Hvað þá ?
Höfum við þá valkostinn að kjósa vinstri græna, frjálslynda eða flokkinn hans Ómars?
Klárlega kýs maður ekki framsókn, sjálfstæðisflokk eða samfylkingu þar sem þeir bera höfuðábyrgð á hvernig hlutirnir eru.
En það væri nú ljúft að hafa fleiri valkosti og þá á ég ekki við flokkinn hans Sturlu heldur eitthvað annað.
Mun ný kosning geta knúið fram þær þjóðfélagsbreytingar sem margir Íslendingar þrá?
Að víkja frá Nýfrjálshyggjunni inná ný mið og þá ekki inná mið kommúnismans.
Hvað getur ný ríkisstjórn gert ?
|
Samþykktu ályktun um stjórnarslit |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
21.1.2009 | 09:41
Lýðræði býr ekki í alþingishúsinu alveg eins og andinn býr ekki í kirkjum eða moskum.
|
Beittu kylfum á mótmælendur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
8.1.2009 | 13:24
Áhrif IMF "structural adjustment program" að koma í ljós
|
Áhrif breytinganna óljós |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
6.1.2009 | 14:18
Hvernig er hægt að styðja þetta stríð ?
Nú hafa fleiri hundruðir Palestínumanna látist af völdum ísraelska hersins. Hvernig er hægt að styðja þessar hræðilegu árásir þar sem tugir barna látast og saklaust fólk. Drepa hundruði manns til ná til örfárra Hamas liða. Gera sprengjuárásir á eitt fjölmennasta svæði í heimi.
Réttlætir eitthvað þvílíkar aðgerðir?
Hvað getur réttlátt ofbeldi ? Hugsanlega þegar fólk er að verja sig. Það má deila um það hvort að sprengjuárásir frá Palestínu séu réttlætanlegar en þær virðast vera eina mótspyrnan sem þeir eiga völ á, eina vörnin þeirra gegn kúgun Ísrael sem hefur hernaðarmátt til þess að þurrka Palestínu út af kortinu og virðist smátt og smátt vera að gera það.
|
12 úr sömu fjölskyldu létust |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
5.1.2009 | 16:38
Sniðgöngum Ísraelskar vörur ..
Tekið af heimasíður Ísland-Palestína:
"Sniðgöngum ísraelskar vörur
Margir hafa að undanförnu haft samband við Félagið Ísland-Palestína og spurt hvort ekki standi til að vera með sniðgönguátak gegn ísraelskum vörum. Greinarhöfundur hefur síðastliðið ár farið í verslanir ásamt fleirum og kannað úrvalið. Hér er hægt að sjá nöfn og myndir af flestum þeim vörum sem fundust.
Þær ísraelsku vörur sem helst standa almenningi til boða í verslunum eru landbúnaðarvörur, t.d. avókadó og greipaldin. Varast ber að þær vörur sem merktar eru „Palestinian Produce“eða jafnvel „Product of Palestine“eru oftar en ekki framleiddar af ísraelskum landtökumönnum á herteknu svæðunum en ekki Palestínumönnum, og er því um ísraelska vöru að ræða. Dæmi um slíkt eru Coral-jarðarber sem voru um tíma seld í verslunum 10–11, 11–11 og í Bónus. Auk þessa hefur Ölgerðin Egill Skallagrímsson flutt inn léttvín frá Ísrael sem seld eru í ÁTVR. Dæmi um þau eru Golan-rauðvín, sem eru framleidd á hinum herteknu Gólanhæðum. Samkvæmt upplýsingum frá Agli Skallagrímssyni eru fleiri tegundir frá Ísrael væntanlegar á markað.
Einnig vekur athygli að samkvæmt tölum Hagstofu Íslands er árlega fluttur inn til landsins fjarskipta- og tæknibúnaður frá Ísrael fyrir tugi milljóna kóna. Þau fyrirtæki sem byggja fjarskiptakerfi sín að hluta á búnaði frá Ísrael eru Lína.net (Loftnet Línu.net) og Landssími Íslands (RAD háhraðamódem, o.fl.). Í sumum tilvikum er notandanum látinn í té ísraelskur búnaður frá þjónustuaðila kaupi hann þjónustu hans, þetta á til að mynda við um Loftnet Línu.Nets.
Ég hvet félagsmenn til að vera á varðbergi og kaupa ekki ísraelskar vörur. Þeir sem frétta af ísraelskum vörum í umferð sem ekki er getið um hér er bent á að hafa samband við höfund í tölvupósti svo hægt sé bæta þeim á sniðgöngusíðu félagsins. Oft er hægt að þekkja ísraelskar vörur á því að vörunúmerið (undir strikamerkinu) byrjar á 729. Einnig er hægt að skrifa forsvarsmönnum viðkomandi verslana kurteisislegt bréf þar sem þeir eru hvattir til að hætta sölu á ísraelskum vörum."
|
Deilt um stjórnmálasamband |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
2.1.2009 | 17:27
Tveir ofbeldismenn sleppa frá mótmælunum, voru mótmælendur þá ekki ofbeldisfullir eftir allt saman?
Þetta virðast nú hafa verið ansi friðsöm mótmæli þar sem þessir gæjar sluppu ómeiddir frá þeim. 200 manns að mótmæla og þessir tveir menn sleppa frá því að berja mótmælendur. Hvar var lögreglan þarna?
Af fyrra myndbandi að dæma var hún upptekin í að henda út fólki sem var sitjandi inná Hótelinu syngjandi.
|
Mótmælendum ógnað á gamlársdag |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Um bloggið
Prátískar hugleiðingar
Tenglar
Jóga
- Vefsíða Ananda Marga erlendis
- Jógafélagið Ananda Marga á Íslandi Jógafélag sem kennir hugmyndafræði jóga, hugleiðslu,jógaæfingar og allar hliðar astaunga jóga ásamt auka hlutum Rajadhiraja jóga. Einnig öflugt í samfélagsþjónustu í gegnum Amurt og Prout.
Mínir tenglar
- Kaffi Hljómalind Samvinnurekið og umhverfisvænt kaffihús byggt á PROUT
Myndaalbúm
Nota bene
Við höfum öll áhrif
"EF þú heldur að þú sért of smár til að hafa áhrif, prófaðu þá að sofa í lokuðu herbergi með moskító flugu" Afrískur málsháttur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 5594
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


andreaolafs
birgitta
dofri
jolasveinn
lillo
killjoker
gunnargeir
gbo
ingibjorgelsa
kreppan
jevbmaack
jenfo
jennystefania
jon-o-vilhjalmsson
larahanna
nytjagardar
listanlandamaera
manisvans
leifurl
omarragnarsson
bjornbondi99
ziggi
vefritid
vest1
satzen
aevark



